15.05.2009 19:36:36 / Silver
Í nótt dreymdi mig að kviknað hefði í norðan við Akureyri og ekki nóg með það þá kom eldurinn (kannski frekar eins og hraun því ég sá engar eldtungur en sá samt eld) alltaf nær og nær enda var hann alveg komin upp á brekkuna. Ég var stödd fyrir ofan Dalsbrautina og fannst að nú yrði ég að fara því það væri orðið of hættulegt hérna, ég tók Betu með mér og settumst við á 2 frekar en 3 plastpoka fulla af einhverju en allavega urðu þeir eins og hjól í laginu sem við gátum ferðast á. Er við komum niður á höfn, reyndar var það hjá rútubílastöðinni þarna niðri í Hafnarstræti og sjórinn var alveg við húsið, þá var mér hugsað til Harðars og ég vonaði svo innilega að hann væri hólpinn þar sem ég sá hann hvergi. Fullt af fólki beið eftir því að komast í báta því vitað mál var það að við yrðum að komast yfir sjóinn ef við ættum ekki að brenna þarna og eldurinn/hraunið kom alltaf nær og nær og frekar hratt og jafnt yfir allan bæinn. Ég sá bát, hvítan ál bát leit út eins og árabátur, hann skyldi ég fara út í, ein manneskja var í honum en þegar ég kom út í hann þá var hann frekar léttur og átti ég erfitt að halda jafnvægi á honum og svo þurfti ég líka að rétta hann upp til að losa sjóinn úr honum því sjórinn vildi alltaf upp í hann. Mig minnir að ég hafi ekki komist almennilega í hann því ég féll í sjóinn um leið og eldurinn/hraunið kom æðandi eftir jörðinni og slettist þá svona hraun út um allt og fékk ég eina slummu beint í hægra augað, ég fann hvernig það storknaði kringum augað á mér. Einhvern veginn komust við á stað innar í firðinum nær ósunum og þar voru nokkrir kofar, mjög fátæklegir eins til tveggja manna kofar, reyndar var eitthvað um gras kringum kofana en líka eins og þar væri svona bleyta með. Ég fór inn í kofann því ég vildi sjá á mér augað í spegli, ég leit í spegilinn og leit snöggt á hitt augað sem var í lagi, augað sem fékk hraunið var nokkurnvegin í lagi nema efst á auganu var rauður punktur, dálítð stór en samt ekki það stór að það þakti augasteininn. Svona rauður punktur eins og þegar maður er með rauð augu á ljósmynd en auðvitað var punkturinn ekki á augasteininum heldur fyrir ofan. Svo vaknaði ég bara!!!!
Skyldi eitthvert hallæri vera í aðsigi hjá Akureyringum eða er einhver að reyna að stinga mig í bakið og reynir að stofna til illindis???? Hvað haldið þið??
þangað til...
bleee
»
04.04.2009 21:46:49 / Silver
Hér er nú kannski ekki beinlínis draumur á ferð, heldur pínu creepy
Þannig var það að á mánudagsnóttina þegar ég var að fara að sofa, var búin að loka augunum og er nokkuð viss um að ég hafi ekki verið sofnuð, þá heyri ég að hvíslað er nafnið mitt
Mjög skýrt var sagt nafnið mitt og þó að þetta hafi verið hvíslað þá opnaði ég augun og ég hélt að hjartað í mér ætlaði út úr mér. Ég leit fram í stofu, sá ekkert, hlustaði vel en heyrði ekkert meir. Þá var ekkert annað í stöðunni en að fara að sofa, sofa með eyrun opin upp á gátt
Daginn eftir var mér sagt upp í vinnunni, samasem merki þarna?? að hvað??þangað til...bleee
»
28.01.2009 01:18:36 / Silver
Ætti maður að fara að byrja að blogga aftur??? Ég er að skoða það og um hvað ætti ég að fara að blogga um
Einhverjar hugmyndir?? Eða ætti ég að fara að blogga um mína drauma og svo að þið getið ráðið í þá
Þeir geta orðið nefnilega frekar vitlausir og lausir í rásinni
þangað til...bleee
»
14.10.2008 11:10:32 / Silver
er gráti næst þegar ég sé þessar myndir af milljörðunum sem hurfu
Hvað er í gangi eiginlega??? Eigum við að sætta okkur við svona eða hvað
"The party is over for Iceland" sagði maðurinn á síðunni, ójá það má sko segja það. Ísland er með krabbamein og spurning hvort lyfjameðferðin gangi.
þangað til...
bleee
»
Síður:
1 2 3 ...
16